Ársfundur viðskiptafulltrúa tíu sendiráða Íslands erlendis verður haldinn dagana 4.- 6. október nk. Viðskiptafulltrúarnir koma til landsins á vegum Íslandsstofu til að hitta íslensk fyrirtæki, efla samstarfið og marka stefnuna fyrir komandi ár.
Miðvikudaginn 5. október verða viðskiptafulltrúar sendiráða Íslands erlendis með viðtalstíma á Icelandair Hótel Reykjavík Natura - Þingsal 3, 1. hæð og er hægt að bóka fundi með þeim á islandsstofa@islandsstofa.is eða í síma 511 4000.
Viðskiptafulltrúar eru staðsettir í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn, Berlín, Moskvu, Nýju-Delí, Peking, Tókýó, Osló, Helsinki, New York og London. Þau búa yfir reynslu og þekkingu á staðháttum, hafa mikilvægt tengslanet og góð sambönd í umdæmislöndum sendiráðanna. Nánar hér
Nánari upplýsingar veita Hrafnhildur Brynja Stefánsdóttir, hrafnhildur@islandsstofa.is og Andri Marteinsson, andri@islandsstofa.is
↧
Viðskiptafulltrúar sendiráða Íslands erlendis til viðtals 5. október
↧