Quantcast
Channel: islandsstofa.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 892

Verkefnisstjóri samfélagsmiðla Inspired by Iceland

$
0
0

 

Íslandsstofa leitar að einstaklingi með þekkingu og reynslu af stjórn samfélagsmiðlaverkefna til að sjá um samfélagsmiðla Inspired by Iceland. 

Verkefnisstjóri á svið ferðaþjónustu og skapandi greina

Ábyrgð og helstu verkefni

  • Umsjón og rekstur samfélagsmiðla Inspired by Iceland
  • Gerð efnis fyrir samfélagsmiðla og vefsíður
  • Greining, áætlanagerð og árangursmælingar
  • Samskipti og samningagerð við verktaka

Kröfur um menntun og hæfni

  • Menntun og reynsla sem nýtist í starfinu
  • Þekking á notkun samfélagsmiðla í markaðssetningu
  • Reynsla af verkefnisstjórnun
  • Góð þekking á landi og þjóð
  • Framúrskarandi ensku- og íslensku kunnátta skilyrði
  • Önnur tungumálakunnátta kostur
  • Menningarlæsi, sjálfstæði, frumkvæði, samskipta- og samstarfshæfni, jákvæðni og hugmyndaauðgi

Hlutverk Íslandsstofu er að efla ímynd og orðspor Íslands, styrkja samkeppnisstöðu íslensks atvinnulífs á erlendum mörkuðum og laða erlenda ferðamenn og fjárfestingu til landsins. Jafnframt veitir Íslandsstofa fyrirtækjum faglega aðstoð við sölu á vörum, þjónustu  og þekkingu erlendis og styður við kynningu á íslenskri menningu ytra.

Umsóknarfrestur er til 19.12.16. 

Upplýsingar veitir sveinnbirkir@islandsstofa.is. 

Sækja um starf


Viewing all articles
Browse latest Browse all 892