Íslandsstofa mun halda áfram að styrkja Gulleggið – frumkvöðlakeppni Icelandic Startups en gengið var frá samkomulagi þar um á dögunum.
Þetta er í 11. sinn sem blásið er til keppninnar og hefur Íslandsstofa verið með frá upphafi. Tímasetningu keppninnar hefur nú verið breytt en framvegis fer hún fram á haustmánuðum sem fellur betur að skólaári háskólanna.
Þegar er opið fyrir umsóknir og rennur frestur út 21. september nk.