Fimmtudaginn 10. maí býður Íslandsstofa til fræðslufundar þar sem Vlad Vaiman, prófessor í alþjóðlegri stjórnun, lýsir árangursríkri tækni við samninga í ólíkum menningarheimum.
Meðal spurninganna sem leita á svara við á fundinum eru eftirfarandi:
- Af hverju er mikilvægt að skilja sinn eigin menningarheim?
- Hvernig tryggjum við árangursrík samskipti milli menningarheima?
- Hvernig forðumst við vandamál í samskiptum og samningum milli ólíkra menningarheima?
Fundurinn verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordica kl. 9:00-10:30.
Vlad Vaiman er prófessor í alþjóðlegri stjórnun og forstöðumaður framhaldsnáms í viðskiptafræði við Háskóla Reykjavíkur. Hann er með doktorsgráðu í fjölmenningarstjórnun frá Háskólanum í St. Gallen í Sviss. Hann hefur starfað sem ráðgjafi hjá fyrirtækjum víðsvegar um heiminn, þar á meðal í Bandaríkjunum, Kanada, Sviss, Rússland og Austurríki. Vlad Vaiman er höfundur tveggja bóka og fjölda fræðigreina um mannauðsmál og stjórnun.
Áhugasamir eru hvattir til að skrá í síma 511 4000 eða með tölvupósti á islandsstofa@islandsstofa.is
Nánari upplýsingar veita:
Björn H Reynisson, bjorn@islandsstofa.is og
Hermann Ottósson, hermann@islandsstofa.is.