Quantcast
Channel: islandsstofa.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 892

Ísland kynnt sem áfangastaður á ferðasýningu í Rússlandi

$
0
0

Ísland tekur nú í fyrsta sinn fullan þátt í MITT ferðakaupstefnunni (Moscow International Exhibition of Travel & Tourism) sem fram fer í Moskvu þessa dagana.

Á síðasta ári var eingöngu fulltrúi frá Íslandsstofu á sýningunni en nú eru það sjö fyrirtæki sem taka þátt. Þau eru: Norðurflug, Icelandair, Hotels of Iceland, Icelandair hotels, Bjarmaland Travel, Aurora Tours og Iceland Travel.

Á sýningunni var kynnt niðurstaða könnunar sem vefsíðan Travel.ru gerði meðal lesenda sinna og völdu þeir Ísland sem besta áfangastaðinn fyrir „Activity Travel“.

Sendiráð Íslands í Moskvu styður vel við verkefnið og mun m.a. Albert Jónsson sendiherra bjóða hagsmunaðilum til móttöku í kvöld – fimmtudag – þar sem gestir fá m.a. að smakka á íslenskum réttum.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 892