Quantcast
Channel: islandsstofa.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 892

Mikill áhugi á Íslandi sem áfangastað á stærstu ferðasýningu í heimi

$
0
0
Þessa daganna fer fram í Berlín stærsta ferðasýning í heimi, ITB. 23 íslensk ferðaþjónustufyrirtæki taka þátt á sýningunni, en Íslandsstofa skipuleggur þátttöku. Alls eru yfir 70 Íslendingar eru á svæðinu undir merkjum Inspired by Iceland. Meðal sýnenda á íslenska básnum eru ferðaskrifstofur, hótel, afþreyingarfyrirtæki og flugfélag. Auk þess eru fulltrúar frá markaðsstofum landshlutanna með á íslenska sýningarsvæðinu og veita upplýsingar. Sýningin er haldin árlega og er ein sú stærsta sinnar tegundar í heiminum en að jafnaði heimsækja hana um 180.000 manns.
 
Íslenska sýningarsvæðið á ITB er afar vel sótt og hefur vakið mikla eftirtekt. Til að kynna íslenska siði fékk Íslandsstofa til liðs við sig tvo jólasveina úr Mývatnssveit, þá Þvörusleiki og Bjúgnakræki, sem gleðja gesti bássins og vekja mikla athygli bæði fjölmiðla og gesta á sýningunni.
 
Samhliða sýningunni er mikið um fyrirlestra og fræðsluerindi um þróun og nýjungar í ferðaþjónustu. Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður, ferðaþjónustu og skapandi greina hjá Íslandsstofu tekur þátt í pallborðsumræðum um þá þróun sem er að verða á markaðssetningu áfangastaða og þeirri breytingu sem átt hefur sér stað í markaðssetningu á Íslandi síðustu ár. Með henni í pallborði eru m.a. aðilar frá öðrum áfangastöðum ásamt aðila frá Google.
 

Viewing all articles
Browse latest Browse all 892