Þar sem felldar hafa verið niður viðskiptahindranir við Íran hefur Íslandsstofa, í samvinnu við utanríkisráðuneytið, ákveðið að skoða möguleika á viðskiptasendinefnd til Írans. Markmiðið er að kanna viðskiptaumhverfi landsins og möguleika íslenskra fyrirtækja á að stofna til viðskipta þar.
Íran er annað stærsta land Mið-Austurlanda og 17. fjölmennasta ríki heims með yfir 78 milljón íbúa. Auk þess er landið eitt elsta menningarsvæði í heiminum. Nú hefur landið verið opnað fyrir alþjóðaviðskiptum á ný og er mikil þörf á uppbygginu á innviðum þess.
Í fyrirhugaðri sendinefnd verður lögð áhersla á eftirfarandi atvinnugreinar:
- Lyfjaiðnað
- Þjónustu og tæknilausnir við fjármála- og bankastarfsemi
- Jarðhitavinnslu og orkudreifingu
- Tæknilausnir í sjávarútvegi
Ekki liggur enn fyrir nákvæm tímasetning en stefnt er að fyrri hluta september. Ferðin er háð því að næg þátttaka náist.
Umsjón með verkefninu hefur Þorleifur Þór Jónsson, thorleifur@islandsstofa.is eða í síma 511 4000.