Quantcast
Channel: islandsstofa.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 892

Íslandsstofa leitar eftir starfsnema

$
0
0

Við erum að leita eftir starfsnema á svið ferðaþjónustu og skapandi greina. Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starfsnám sem hentar vel með námi. 

Helstu verkefni og ábyrgð

Markmið starfsnámsins er að gefa ungu fólki sem er að hefja starfsferil sinn og vill afla sér reynslu, færi á að kynnast því fjölbreytta starfi sem unnið er í alþjóðlegri markaðssetningu hjá Íslandsstofu. Um er að ræða 40% starfshlutfall sem hentar vel með námi (frá janúar og fram í maí árið 2017).

Hæfniskröfur

  • Umsækjandi þarf að vera í BS/BA- eða meistaranámi í grein sem tengist störfum Íslandsstofu á sviði ferðaþjónustu og skapandi greina
  • Áhugi á fjölmiðlum, almannatengslum eða alþjóðlegri markaðssetningu æskilegur.
  • Góð kunnátta í ensku og íslensku - önnur tungumálakunnátta er æskileg
  • Góð þekking á Íslandi
  • Skipulögð og nákvæm vinnubrögð

Upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Sylvía Kjartansdóttir, verkefnisstjóri, ferðaþjónustu og skapandi greina, ragnheidur@islandsstofa.is

Umsóknum skal skila rafrænt á islandsstofa@islandsstofa.is fyrir 4. nóvember nk.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 892